Ingó Veðurguð berst til síðasta blóðdropa: „Mig langar mest af öllu að fá frið með konunni minni og verðandi barni“
Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, skrifaði færslu í gær á Facebook þar sem hann svarar fyrir frétt DV þar sem nafnlaus kona segist hafa kært Ingó fyrir líkamsárás í fyrra. Hann birtir samskipti sín við lögregluna máli sínu til stuðnings sem sjá má hér neðar.
Hringbraut sagði frá. Fullyrt hefur verið að Ingó hafi hvorki verið kærður, ákærður né sakfelldur fyrir brot gegn konum. En DV rifjaði síðan upp í gær að ónafngreinda konu sem hafi kært Ingó fyrir líkamsárás sumarið 2021 sem átti sér stað 2017 en lögreglan hafi sagt málið fyrnt.
„Ég fer að verða ansi þreklaus í þessu öllu og enn og aftur hef ég enga leið til að verja mig þar sem allt er nafnlaust. Að ég fari svo að kýla konu og hrækja framan í er í besta falli galið en þetta sýnir hversu langt ákveðnir hópar eru til í að ganga. Hér kemur skýrt fram að ég hef ALDREI verið ákærður fyrir ofbeldisbrot eða kynferðisbrot enda aldrei gert slíkt,“ skrifar Ingó á Facebook.
„Ég veit ekki hvers vegna DV birtir svona. Ég mun berjast þar til ég dey að hafa aldrei nauðgað, riðið börnum eða lamið konur. Það skal ég sverja upp á konuna mína, Pinna og Gumma bróður þau sem ég elska mest. Ég er saklaus og mun berjast þó ég standi einn að berjast. Þetta fólk svífst einskis. Mig langar mest af öllu að fá frið með konunni minni og verðandi barni.“