Jón Kaldal blaðamaður sagði, í þættinum Pressan á Hringbraut í gærkvöld, að eigendur fiskeldisfyrirtækjanna á Vestfjörðum hafi í vinnu hjá sér forseta þriggja bæjarstjórna á Vestfjörðum. Á Ísafirði, í Bolungarvík og í Vesturbyggð.
Eins nefndi Jón þá staðreynd að þegar Einar K. Guðfinnsson hætti sem forseti Alþingis gekk hann til liðs við fiseldisfyrirtækin. Sem öll stunda eldi í sjókvíum. Mun fleiri fiskar drepast þar en til dæmis í Noregi, heimalandi eigendanna.
Að auki benti Jón Kaldal á að Jens Garðar Helgason, sem formaður fjárhagsráðs Sjálfstæðisflokksins, sé starfsmaður samskonar fiskeldis á Austfjörðum.
Hér er hægt að horfa á þáttinn.