Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi rétt í þessu að íslenska heilbrigðiskerfið sé eitt það besta í heimi. Jóhann býr í Reykjanesbæ. Það þarf ekkert að leita uppi fréttir um slæma stöðu heilsugæslunnar.
Ætli Jóhann Friðrik trúi þessu? Formaðurinn hans, Sigurður Ingi Johannsson, sagði Kryddsíldinni á gamlársdag að hvar sem litið væri í heilbrigðismálum eða velferðarmálum fengi Ísland, í samanburði við önnur lönd, gull silfur eða brons í öllum greinum.
Ljóst er að nýi þingmaðurinn trúir formanni sínum. Ætli hann sé sá eini?
-sme
Þú gætir haft áhuga á þessum