Ekki man ég eftir öðrum en Davíð Oddssyni sem flokkar sig og sína líka í flokkinn „Fyrirmenni“. Meiri verður hégóminn varla. Nú á sigurstundu hefur hann allt á hornum sér.
Mogginn fékk bólginn ríkisstyrk, kvótaflokkarnir eru í miklum meirihluta, áfram verður staðinn vörður um stjórnarskrána og ekki verður sótt um aðild að Evrópusambandinu. Hvað vill hið aldna „fyrirmenni“ meira?
Davíð ríkisritstjóri fjallar um nýafstaðnar kosningar í leiðara dagsins. „Þetta er áfall fyrir hið orðljóta vinstri og afarkostapólitík þess,“ skrifar ríkisstyrkti ritstjórinn í leiðara dagsins. „Það sést á því hvernig bæði Samfylking og Píratar guldu sögulegt afhroð eftir að hafa verið í samfelldri stjórnarandstöðu frá 2013. Píratar fengu sinn lakasta árangur frá því fyrst var boðið fram og Samfylkingin er komin niður fyrir 10% fylgi.“
Það er rétt hjá ríkisritstjóranum að staða þessara flokka, einkum Samfylkingarinnar, er vond. En við sem ekki erum „fyrirmenni“ að hætti ríkisritstjórans, munum bara ekki eftir að Logi til að mynda hafi verið orðljótur í sinni vonlausu baráttu.
„Fyrirmennið“ þarf greinilega ekki mikið til að móðgast.
-sme