SAMFÉLAG „Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að Neytendalán ehf., sem rekur smálánafyrirtækin 1909, Múla og Hraðpeninga, eigi að greiða dagsektir að fjárhæð 20.000 kr. á dag þar til félagið bætir úr upplýsingagjöf á vefsíðum sínum.“
Þetta er ákvörðun Neytendastofu. Á heimasíðu stofunnar segir einnig: „Samkvæmt lögum ber fyrirtækjum að veita upplýsingar um sig á vefsíðum sínum þannig að neytendur eigi auðvelt með að átta sig á því hver stendur að baki síðunni. Þetta eru upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, kennitala og virðisaukaskattnúmer. Þar sem þessar upplýsingar er ekki að finna með fullnægjandi hætti á vefsíðum 1909, Múla og Hraðpeninga og Neytendalán hefur ekki orðið við kröfu Neytendastofu um að bæta upplýsingagjöf sína þurfa þau nú að greiða dagsektir þar til úr þessu verður bætt.“