Gunnar Smári:
Ef Flokkur fólksins nær yfir 5% þröskuldinn tæki flokkurinn einn þingmann til af ríkisstjórninni og hún fengi aðeins 30 þingmenn.
Sósíalistaflokkurinn hefur ekki mælst stærri hjá Gallup en nú, og staðfestir könnunin að flokkurinn er í mikilli sókn. Vöxtur Sósíalista veldur því að ríkisstjórnin fellur, fær aðeins 46,2% fylgi en 31 þingmann. Ástæða þess að stjórnin fær þó svona marga þingmenn er að 4,9% atkvæða greidd Flokki fólksins skila líklega engum þingmanni. Ef Flokkur fólksins nær yfir 5% þröskuldinn tæki flokkurinn einn þingmann til af ríkisstjórninni og hún fengi aðeins 30 þingmenn.
Breytingin frá könnun Gallup frá fyrri hluta ágúst til síðari hluta eru þessar:
Flokkar sem bæta við sig:
- Sósíalistar: +1,5 prósentustig
- Viðreisn: +1,5 prósentustigFlokkar sem standa í stað:
- Flokkur fólksins: +0,8 prósentustig
- Miðflokkurinn: +0,3 prósentustig
- Samfylkingin: +0,3 prósentustig
- Sjálfstæðisflokkurinn: –0,3 prósentustig
- Framsókn: –0,8 prósentustig
Flokkar sem missa fylgi:
- Píratar: –1,7 prósentustig
- VG: –1,7 prósentustig
Ef við skiptum þingheim upp miðað við þetta fylgi er staðan þessi (innan sviga er breyting frá fráfarandi þingi, eftir flokkaflakka nokkurra þingmanna):
Ríkisstjórnin:
- Sjálfstæðisflokkurinn: 17 þingmenn (+1)
- VG: 8 þingmenn (–1)
- Framsókn: 6 þingmenn (–2)
Ríkisstjórnin alls: 31 þingmenn (–2)
Stjórnarandstaða I (hin svokallaða frjálslynda miðja):
- Samfylkingin: 8 þingmenn (óbreytt)
- Píratar: 7 þingmenn (óbreytt)
- Viðreisn: 7 þingmenn (+3)
Stjórnarandstaða I: 22 þingmaður (+3)
Stjórnarandstaða II (nýtt hægri)
- Miðflokkurinn: 5 þingmenn (–4)
- Flokkur fólksins: Enginn þingmaður (–2)
Stjórnarandstaða II: 5 þingmenn (–6)
Stjórnarandstaða III, utan þings:
Sósíalistaflokkurinn:
- 5 þingmenn (+5)
Ef við tökum stöðuna frá síðustu kosningum, það er fyrir flokkaflakk, þá eru breytingarnar á þingmannafjölda flokkanna þessi:
Þessir bæta við sig:
- Sósíalistar: +5
- Viðreisn: +3
- Sjálfstæðisflokkurinn: +1
- Samfylkingin: +1
- Píratar: +1
Þessir flokkar tapa þingmönnum:
- Flokkur fólksins: –4
- VG: –3
- Miðflokkurinn: –2
- Framsókn: –2
Eins og sést af þessu er Sósíalistaflokkurinn og Viðreisn einu flokkarnir í teljandi sókn í dag. Ef við skoðum breytingar á fylgi frá kosningunum þá er hún þessi:
Þessir flokkar hafa dregið til sín fylgi:
- Sósíalistar: +8,2 prósentustig
- Viðreisn: +3,9 prósentustig
- Píratar: +1,7 prósentustig
Þessir flokkar standa í stað:
- Samfylkingin: –0,6 prósentustig
- Sjálfstæðisflokkur: –1,0 prósentustig
- Framsókn: –1,0 prósentustig
Þessir flokkar hafa tapað fylgi:
- Flokkur fólksins: –2,0 prósentustig
- Miðflokkurinn: –3,9 prósentustig
- VG: –4,6 prósentustig
Þarna færast um 13,5 prósentustig milli flokka og þar af tekur Sósíalistaflokkurinn til sín næstum 2/3.