Stjórnarskrárfélagið:
Í ályktun landsfundar VG sem birt var í gær eru mörg atriði talin upp sem flokkurinn vill ná fram. Þar er líka að finna nýja stefnu flokksins um stjórnarskránna. Þar segir: „Halda þarf áfram endurskoðun stjórnarskrárinnar. Löngu er tímabært að ný ákvæði um auðlindir í þjóðareign og umhverfis- og náttúruvernd hljóti afgreiðslu Alþingis en einnig þarf að ráðast í tímabærar breytingar á öðrum köflum. Endurskoða þarf mannréttindakafla stjórnarskrárinnar meðal annars með hliðsjón af réttinum til menntunar, heilbrigðis og lífsviðurværis.“ Það er áhugavert að bera þetta saman við stefnu flokksins í sama máli árið 2017 því þá var hún þessi:
„NÝ STJÓRNARSKRÁ
Ljúkum þeirri vinnu sem hófst með þjóðfundinum 2010 og klárum nýja stjórnarskrá sem byggir á tillögum Stjórnlagaráðs.“
Kúvending?
Eftir þetta kjörtímabil þyrfti það svo sem ekki að koma neinum á óvart að VG vilji ekki nýju stjórnarskrána.
Ef kjósandi vill leggja áherslu á að Alþingi virði niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012 um að leggja nýju stjórnarskrána til grundvallar sem stjórnarskrá Íslands, ætti hann því ekki að ráðstafa sínu atkvæði til VG.