Sprengisandur Í þættinum Sprengisandur í fyrramálið mætast þeir Kári Stefánsson og Vilhjálmur Árnason alþingismaður. Umræðuefnið verður frumvarp Vilhjálms um að heimilt verði að selja vín og áfengi í matvöruverslunum.
Heimildir herma að æ fleiri þingmenn lýsi, með einum eða öðrum hætti, stuðningi við frumvarpið.
Á sama tíma herðast það fólk í afstöðu sinni sem telur að samþykkt frumvarpsins muni kalla yfir þjóðina mikinn vanda.
Umræða þeirra Kára og Vilhjálms verður fyrst á á dagskrá þáttarins.
Þú gætir haft áhuga á þessum
Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar alla sunnudagsmorgna millli klukkan tíu og tólf.