Marinó G. Njálsson skrifar:
Seðlabankastjóri, Ásgeir Jónsson, fær hrós dagsins og mánaðarins og ársins fyrir að segja sannleikann.
Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunaðilum!
Hann segir, eins og margir hugsa vafalaust, það vera ótækt að „einkafyrirtæki og stórt útgerðarfyrirtæki geti farið á eftir ríkis- og embættismönnum eins og Samherji hefur gert“.
Ég tek svo sem ekki undir óþol hans með að lögreglustjórinn á Vestfjörðum vinni hægt, en get samt ekki annað en haft gaman af orðum hans:
„Ég skil bara ekki hvern andskotann þessi lögreglustjóri þarf að rannsaka og af hverju þessu er ekki bara vísað frá.“
Bíð spenntur eftir útspili Þorsteins Más. Hann mun örugglega ekki sitja hljóður undir þessari eldmessu seðlabankastjóra.
Skrifin birtust fyrst á Facebooskíðu höfundar.