Getur ekki kosið Sjálfstæðisflokkinn
„Reyndar er það þannig að frá því að núverandi formaður tók við hef ég ekki getað kosið Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu,“ skrifar viðskiptafræðingurinn Guðjón Smári Agnarsson í Moggann í dag.
„Það er geymt en ekki gleymt að hann hélt því fram í Fréttablaðinu fyrir u.þ.b. 15 árum að hann væri þeirrar skoðunar að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þó að margt gott megi segja um manninn og þó að hann hafi ýmislegt gott gert í fjármálaráðuneytinu þá er það afar ótrúverðugt að flokkur hafi formann sem hefur öndverðar skoðanir við grundvallarstefnu flokksins,“ skrifar Guðjón Smári.
Hann heldur áfram: „Ég hef skynjað orð hans um sjálfstæðismál þannig að hann hafi ekki skipt um skoðun á málinu – bara að það henti ekki að ganga inn um þessar mundir. Sjálfstæðisflokkurinn verður að standa undir nafni, annars er ekki hægt að kjósa hann. Mér virðist að hann sé að breytast í krataflokk. Kannski heldur forysta flokksins að þeir nái inn krötunum sem gengu út og stofnuðu Viðreisn. Þá gleyma þeir fólkinu sem hefur kosið flokkinn vegna þess að hann hefur staðið vörð um sjálfstæði landsins.“
(Fyrir ykkur sem teljið skal þess getið að þetta er fyrsta frétt dagsins um Bjarna Benediktsson. Óvíst er hvort þær verði fleiri. Þó er aldrei að vita.)