Sprengisandur Svandís Svavarsdóttir var meðal gesta í Sprengisandi í morgun. Þar var meðal annars rætt um framíköll í þingsal.
„Ég held að það hafi ekki sést í annan tíma að það séu mikið af framíköllum af ráðherrabekkjunum, þeir tveir þarna, forsætis- og utanríkis, það er stundum þannig að það er eins og maður sé að kenna í bekk, það er vont ef tilteknir sitja saman. Þá spenna þeir upp stemminguna,“ sagði Svandís meðal annars.
Ásmundur Einar Daðason var í þættinum og fann líka að framíköllum. „Það hefur keyrt algjörlega um þverbak og ég verð að segja eins og er að stundum var það svoleiðis að stundum heyri maður ekki, þegar maður er í ræðustól, í sjálfum sér fyrir framíköllum utan úr sal. Þetta verðum við einfaldlega að taka til hliðsjónar og verðum að draga úr þessu.“
Hér er hægt að hlusta á þann hluta þáttarins þar sem þetta var rætt. Óttar Proppé var einnig þátttakandi í umræðunni.