„Mér þykir t.d. þungbært að vita að stjórnin vill gefa minkum mat fyrir 160 milljónir á sama tíma og fátækt fólk skal búa við örvinglan. Það að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu er það sama og að neita því um réttlæti,“ segir meðal annars í Moggagrein Ingu Sæland í dag.
Inga skrifar: „Úr því sem komið er geri ég ekki athugasemdir við lántökur ríkissjóðs til að fleyta okkur gegnum kófið. Ég tel hins vegar forgangsröðun fjármuna ranga. Það á alltaf að setja fólkið í fyrsta sæti. Þessi ríkisstjórn gerir það hins vegar alls ekki, og sýndi það svo ekki verður á móti mælt, þegar hún felldi hverja einustu breytingatillögu mína við fjárlögin. Í kreppu er ekki verið að bjarga fátæku fólki frá því að sökkva enn dýpra í örbirgðarfenið.“