Franklín vill stoppa Samherja
„Samherji kominn langt yfir lögbundið 12% kvótaþak með lagaklækjum, þessir menn geta bara ekki virt anda laga um fiskveiðar eins og þau voru samin af löggjafanum.
12 % kvótaþak af heildarkvóta var sett til þess einmitt að svona yfirgangur og græðgi gæti ekki átt sér stað. Nú er kominn tími til að taka á þessum mönnum.
Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn ætlar að berjast fyrir því að stoppa þessa grófu hringamyndun og fákeppni og leysa upp þessar risa viðskiptablokkir,“ skrifar Guðmundur Franklín Jónsson.
„Grunaðir alþjóðlegir glæpamenn sem staðnir hafa verið að því að múta stjórnmálamönnum þróunarríkja halda áfram að fara á svig við íslensk lög þegar þeir sölsa undir sig æ stærri hluta af auðlindum Íslendinga. Þetta gerist á vakt Katrínar Jakobsdóttur, en ekki ber á öðru en að hún sé afar sátt og sæl með þróun mála,“ skrifar Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður.