Menn voru hins vegar að stæra sig af góðu veðri í svikalogni.
Marinó G. Njálsson skrifar:
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ætlar að ræða við Washington Post um hvað aðrar þjóðir geta lært af Íslendingum vegna viðbragða hér á landi við Covid-19 faraldrinum. Mér finnst einhvern veginn, að við Íslendingar ættum að sýna hógværð, þegar kemur að getu okkar til að breiða út þekkingu í þessum efnum. Það rigndi talsvert upp í nefið á ráðamönnum í vor, sem var svo sem ekki alveg óskiljanlegt. Menn voru hins vegar að stæra sig af góðu veðri í svikalogni.
Höfum svo í huga að lærdómurinn kemur almennt í logninu á EFTIR storminum, en ekki meðan stormurinn geisar.
Ef hins vegar marka má tölur frá umheiminum, þá get ég nefnt nokkur lönd sem virðast hafa náð ótrúlegum árangri (eða eru í afneitun):
- Salomon eyjar, 3 smit, 690.000 íbúar
- Laos, 23 smit, 7,3 milljónir íbúa-
- Kambodía, 283 smit, 16,8 milljónir íbúa
- Tansanía, 509 smit, 60,2 milljónir íbúa-
- Víetnam, 1.134 smit, 97,6 milljónir íbúa.
Greinin birtist á Facebooksíðu Marinós.