- Advertisement -

Ógæfa Manchester United magnast

Mannlíf Ekki er nóg að Manchester United hafi mistekist að komast áfram í Meistaradeildinni og verður að gera sér Evrópukeppnina að góðu.

Nú bætist við að leikmönnum sem ekki geta leikið næstu leiki félagsins fjölgar, vegna meiðsla eða leikbanna. Alls verða tíu leikmenn, sem er hægt að telja til mikilvægari leikmanna liðsins, fjarverandi af þessum sökum í næstkomandi leikjum.

Bastian Schweinsteiger hefur verið úrskurðaður í þriggja leikja bann eftir að veitti Winston Reid, varnarmanni West Ham, hörkuolnbogaskot, í leik liðanna um liðna helgi. Hann verður því ekki með um helgina þegar liðið leikur gegn  Bournemouth.

Stuðningsmenn eru ósáttir með leik liðsins og gagnrýna stjórann Louis Van Gaal við hvert tækifæri.Æ fleiri vilja að hann verður rekinn úr starfi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Liðið verður því án tíu leikmanna sem hafa spilað reglulega fyrir félagið á þessari leiktíð en mynd af þessu má sjá hér fyrir neðan.

Þess ber þó að geta að Manchester United er í fjórða sæti deildarinnar, þremur stigum frá efsta sæti deildarinnar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: