Samfélag Borgarráð hefur samþykkt tillögu um að póstnúmer 101 verði skipt í tvennt. „…og að Vatnsmýrin fái póstnúmerið 102.“
„…rökstuðningur fyrir því að í ljósi umfangs póstnúmers 101, landfræðilega og m.t.t. til byggingarmagns og uppbyggingar framundan, sé tímabært að skipta póstnúmerinu upp í tvennt.“
Lagt er til að sá hluti póstnúmers 101 sem er sunnan Hringbrautar breytist í póstnúmerið 102 og að mörk við póstnúmer 107 og 105 haldist óbreytt.
„Lagt er til að erindið verði sent til umsagnar Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Icelandair, Knattspyrnufélagsins Vals, Valsmanna hf., hverfisráðs Vesturbæjar og Prýðifélagsins Skjaldar.“