Ráðherrarnir hafa þurft að hafa hafast við í köldum skugga. Skugga af þríeykinu. Þórólfi, Ölmu og Víði. Ráðherrunum er kalt í skugganum. Ískalt. Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, kemur inn á þetta í vikulegri Moggagrein. Grein sem hann nefnir; „Hlauptu hlunkur, hlauptu“.
Benedikt endar grein sína svona: „Þegar loksins var farið í gang var sett upp sýning með þremur ráðherrum, sem greinilega vildu ná í hluta af þeirri virðingu sem þríeykið hefur notið. En vandinn snýst ekki um hégóma heldur skjót viðbrögð. Það bað nefnilega enginn um hik og aðgerðaleysi.“
Hárrétt hjá stofnandanum.