- Advertisement -

Alþingi: Hvenær fer verðtryggingin?

Stjórnmál  Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, minntist þess, á Alþingi fyrr í dag, að hún hafi talað, fyrir kosningar, á hverjum einasta fundi um hversu mikilvægt það væri fyrir heimili landsins að verðtryggingin yrði afnumin af neytendalánum.

„Það var sannfæring mín þá og það er sannfæring mín í dag. Framsóknarflokkurinn hélt meira að segja nokkra fundi sem fjölluðu sérstaklega um verðtrygginguna og afnám hennar. Þeir fundir voru vel sóttir og Framsóknarflokkurinn vann glæsilegan kosningasigur. Áherslur okkar í baráttunni voru fyrst og fremst leiðrétting stökkbreyttra húsnæðislána og afnám verðtryggingar á neytendalánum. Ég get því ekki annað en túlkað sigur okkar í kosningabaráttunni sem stuðning fjölmargra Íslendinga við þessi kosningaloforð okkar. Í ályktunum undanfarinna flokksþinga Framsóknarflokksins segir að framsóknarmenn vilji að verðtrygging á neytendalánum verði afnumin. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna segir síðan, með leyfi forseta:

„Sérfræðinefnd um afnám verðtryggingar af neytendalánum og endurskipulagningu húsnæðislánamarkaðarins verður skipuð á fyrstu dögum nýrrar ríkisstjórnar og mun skila af sér fyrir næstu áramót.“

Þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar var fylgt eftir með þingsályktunartillögu í júní 2013. Hópurinn var stofnaður og skilaði minni- og meirihlutaáliti. Menn deildu um hvaða leið væri best að fara en voru sammála um markmiðið, þ.e. að afnema skuli verðtrygginguna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Virðulegi forseti. Áætlun ríkisstjórnarinnar hefur staðist hingað til. Tíminn er ekki runninn frá okkur en hann mun gera það ef við höldum ekki vel á spöðunum næstu vikur og mánuði. Nú liggur verkefnið á borði hæstv. fjármálaráðherra, ég treysti því að hann vinni málið vel og hlakka til að sjá frumvarpið þegar það birtist okkur,“ sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir á Alþingi í dag.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: