- Advertisement -

Náttúruverndin verður útundan

Alþingi Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra lagði fram á Alþingi frumvarp sem frestar gildistöku laga um náttúruvernd til 1. janúar 2016. Jafnframt hyggst ráðherra mæla fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd næsta haust, sem felur í sér endurskoðun á náttúruverndarlögum. Þetta er gert til að tryggja að frumvarp um náttúruvernd fái fullnægjandi umfjöllun á Alþingi.

„Þar sem ekki er unnt að afgreiða frumvarp um endurskoðun náttúruverndarlaga fyrir þingfrestun hefur ráðherra lagt til að gildistöku náttúruverndarlaga verði frestað til 1. janúar 2016. Þar sem hér er um að ræða  grundvallarlöggjöf er nauðsynlegt að frumvarpið fái fullnægjandi umfjöllun á Alþingi til að skapa sem mesta sátt um niðurstöður þess. Er ráðgert að frumvarp um breytingu á lögum um náttúruvernd verði lagt fram á Alþingi næstkomandi haust með gildistöku um næstu áramót,“ segir ráðuneytið.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur unnið að endurskoðun náttúruverndarlaga, með hliðsjón af nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar og átti ráðuneytið víðtækt samráð við stofnanir, hagaðila og umhverfis- og samgöngunefnd við gerð frumvarpsins. 

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd voru birt á heimasíðu ráðuneytisins í mars 2015 þar sem öllum var gefið tækifæri til að veita umsögn um frumvarpið. Að loknu umsagnarferli vann ráðuneytið drög að endanlegu frumvarpi á grundvelli þeirra umsagna sem bárust.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: