- Advertisement -

Hafi Miðflokkurinn skömm fyrir

Ágíust Bjarni Garðarson:
„Miðflokkurinn stundar nú málþóf á þingi og talar við sjálfan sig klukkutímunum saman.“

Engir kærleikar eru milli Miðflokks og Framsóknar. Eðlilega. Skilnaðurinn var sár.

Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði, sá leið til að skjóta að fjandvininum í Miðflokki:

„Miðflokkurinn stundar nú málþóf á þingi og talar við sjálfan sig klukkutímunum saman. Markmiðin virðast skýr; koma í veg fyrir einhverjar mestu uppbyggingu, og flýtingu mjög brýnna og stórra samgönguframkvæmda um land allt, svo lengi sem elstu menn muna. Einnig að koma í veg fyrir þá fjölgun starfa sem af þeim framkvæmdum munu hljótast. Allt virðist þetta vera gert til að koma í veg fyrir að íbúar og ferðamenn þessa lands búi við sama umferðaröryggi og tíðkast í þeim löndum sem við gjarnan berum okkur saman við. Vonandi sjá þessir ágætu þingmenn að sér, en það verður að teljast ólíklegt. Hafi þeir skömm fyrir.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Víst er að fleiri skeytasendingar eiga eftir að ganga milli liðsmanna Framsóknar og Miðflokks.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: