Viðbrögðin við aðför kvótagreifanna að eigin þjóð mætir harðri gagnrýni og mótspyrnu.
Hægara er um að tala en í að komast, kom í huga minn þegar ég heyrði Bjarna Benediktsson boða fulla hörku, gegn ófyrirleitnum kvótagreifum, á Alþingi í gær. Ögn af spennu myndaðist um hvernig Mogginn, málgagn kvótagreifanna, tæki á orðum Bjarna sem og Katrínar Jakobsdóttur. Þar er ekki eitt orð um þetta í leiðara og ekki í Staksteinum.
Hins vegar er viðtal við einn af óskasonum Valhallar, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binna í Vinnslustöðinni.
Mogginn: „Það eru vissulega erfiðir tímar, en lög gilda líka á erfiðum tímum,“ sagði Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, aðspurður hvort til greina kæmi að draga til baka kröfu um bætur frá ríkinu vegna fjártjóns við úthlutun á heimildum til veiða á makríl í kjölfar tveggja dóma Hæstaréttar frá 6. desember 2018. ,,Við yrðum ekki spurð að því hvort illa stæði á hjá okkur hefðum við valdið ríkisvaldinu skaða,“ bætti hann við. Sjö fyrirtæki hafa gert kröfu um bætur frá ríkinu samtals að upphæð um 10,2 milljarða króna auk þess sem krafist er hæstu mögulegu vaxta.“
Greiðslan vegna þess verður þá að koma frá greininni.
Bjarni á Alþingi í gær: „Í því sambandi langar mig að segja að fiskveiðistjórnarkerfið okkar er ekki náttúrulögmál. Það er mannanna verk. Aðgangur að auðlindinni, stjórn veiðanna, hvernig við viljum tryggja sjálfbærni veiðanna, hvaða veiðigjald við ætlum að taka, eru allt mál sem við ráðum til lykta á Alþingi með lögum og reglum. Möguleg innbyrðis togstreita um aflaheimildir á milli útgerða verður ekki leyst á kostnað skattgreiðenda. Það verður ekki þannig. Nú höfum við tekið til varna í hinu svokallaða makrílmáli. Við munum taka til fullra varna. Ég hef reyndar góðar væntingar um að við munum hafa sigur í því máli. Ef svo ólíklega vill til að það mál fari ríkinu í óhag er einfalt mál í mínum huga að reikningurinn vegna þess verður ekki sendur á skattgreiðendur. Greiðslan vegna þess verður þá að koma frá greininni. Það er svo einfalt.“
Mogginn: Sigurgeir Brynjar sagði þessi orð Bjarna vekja ýmsar spurningar og um sérstaka hótun væri að ræða. ,,Ég hef oft heyrt í fréttum að ríkið hafi tapað máli og verið dæmt til greiðslu skaðabóta í kjölfarið en aldrei áður heyrt því hótað að skattleggja þá sem urðu fyrir skaðanum sérstaklega fyrir skaðabótunum. Ég er ekki löglærður en ég að held ég geti fullyrt að þessa lagatúlkun sé ekki að finna í lögbókum réttarríkja,“ segir Sigurgeir.
Viðbrögðin við aðför kvótagreifanna að eigin þjóð mætir harðri gagnrýni og mótspyrnu. Til þessa hafa þeir haft sitt fram og freista þess nú að leggja Bjarna, Katrínu og annað það fólk og flokka sem hafa þegið af þeim mikla peninga.
Komi til þess að Bjarni kikni undan kröfum kvótagreifanna þá á hann eftir að vinda ofan af eigin orðum. Það kann að reynast erfitt.
Félögin sem fara gegn þjópinni eru; Ísfélag Vestmannaeyja hf., Gjögur hf., Skinney-Þinganes hf., Loðnuvinnslan hf., Huginn ehf., Eskja hf. og Vinnslustöðin hf. Kröfur þeirra eru hér: