Nema hugsjónirnar séu gleymdar og grafnar.
Jón Magnússon, fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokks, skrifar á bloggsíðu sína.
Þar segir hann meðal annars:
Katrín Jakobsdóttir, hæst launaðasti forsætisráðherra í Evrópu lýsir yfir hugmyndafræðilegri samstöðu með gríska kommúnistanum Varoufakis og amríska sósíalistanum Bernie Sanders. Engin furða miðað við þetta hugmyndafræðilega upplegg, að fólk skuli þurfa að bíða sárþjáð eftir bráðaaðgerðum á Íslandi svo mánuðum og jafnvel árum skiptir til að koma í veg fyrir það að einkaframtakið leysi vandann og eyði biðlistunum. Flokkur sem telur sig helsta málsvara einstaklings- og athafnafrelsis getur hugmyndafræðilega ekki setið í svona ríkisstjórn. Nema hugsjónirnar séu gleymdar og grafnar.