- Advertisement -

Svanasöngur Bjarna?

Senn kann að koma að því að Bjarni skili lyklunum. Lyklunum að Valhöll og ráðuneytinu. Syngi sinn svanasöng.

Kenningar eru uppi um að það sé Bjarna mikið mál að selja Íslandsbanka. Og þá auðvitað til fyrrverandi eigenda. Þegar það á að hafa gengið í gegn megi hann loks taka poka sinn og hætta í stjórnmálum. Fyrr ekki.

Þau sem standa að „pólitík“ Bjarna vilja eflaust endurheimta sinn gamla banka, Íslandsbanka. Bjarni fær ekki frelsi fyrr en hann hefur tryggt að svo verði. Allt þetta fólk, og Bjarni meðtalinn, hélt að Vinstri græn yrðu fyrirstaða. Svo varð ekki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eitt sinn sagði Steingrímur J.: „Hvernig eigum við svo að losa um eignarhluti t.d. í Íslandsbanka? Ég er hrifinn af þeirri leið sem Norðmenn fóru á sínum tíma þegar þeir sátu uppi með umtalsvert eignarhald í fjármálafyrirtækjum. Þeir lögðu áætlun til langs tíma og tröppuðu eignarhald ríkisins niður í rólegum skrefum.“

Engeyingar nenna þessu varla. Að eignast bankann „sinn“ í rólegum skrefum. Svo þegar á reyndi var ekkert hald í Vinstri grænum. Þau samþykkja allt sem Bjarni segir og vill og áður hefur Bjarni samþykkt allt sem honum er ætlað að gera.

Sumir hafa slefað yfir minna þessu:

„Íslands­banki, sem er í eigu rík­is­ins, hagn­að­ist um 10,6 millj­arða króna eftir skatta og var arð­semi eigin fjár bank­ans 6,1 pró­sent. Stjórn bank­ans leggur til 5,3 millj­arða króna arð­greiðslu til rík­is­ins, vegna árs­ins 2018. Það sam­svarar 50 pró­sent af hagn­aði bank­ans og er í sam­ræmi við lang­tíma­stefnu bank­ans um 40 til 50 pró­sent arð­greiðslu­hlut­fall af hagn­að­i.“ Úr Kjarnanum.

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: