390 einstaklingar voru á biðlista eftir varanlegu hjúkrunarrými og 80 á biðlista eftir varanlegu dvalarrými í byrjun nóvember í fyrra.
Lengstur er biðtíminn á Sauðárkróki, eða 527 dagar.
Það var Halla Signý Kristjánsdóttir Framsóknarflokki sem spurði Svandísi Svavarsdóttur. Svar hennar hér að neðan:
1. Hversu margir einstaklingar, sem hafa farið í gegnum færni- og heilsumat, eru á biðlista eftir varanlegu hjúkrunar- og dvalarrými (fyrsta val á heimili), sundurliðað eftir heimilum sem fá greidd daggjöld frá Sjúkratryggingum Íslands?
2. Hver er meðalbiðtími þeirra sem eru á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrými, sundurliðað eftir hjúkrunar- og dvalarheimilum?
Hinn 1. nóvember 2019 voru 390 einstaklingar á biðlista eftir varanlegu hjúkrunarrými og 80 á biðlista eftir varanlegu dvalarrými. Er þá miðað við að skráð hafi verið ósk um heimili og ekki sé um að ræða flutning milli heimila.
Í svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ásgerðar K. Gylfadóttur um stöðu á biðlistum, þskj. 631, 283. mál, voru tölur fengnar frá færni- og heilsumatsnefndum. Samkvæmt þeim tölum beið 491 eftir hjúkrunarrými en nefndirnar fengu ekki forsendur um hvaða skilyrði ætti að miða við til að telja á biðlista. Ætla má að það skýri mismuninn.
Sundurliðun eftir heimilum má sjá í eftirfarandi töflum.
Tafla 1: Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir hjúkrunarrými og meðalbiðtími í dögum, sundurliðað á hjúkrunarheimili 1. nóvember 2019.
Hjúkrunarheimili | Fjöldi á biðlista | Meðalbiðtími í dögum | Fjöldi sem beðið hefur lengur en 90 daga |
Ás, Hveragerði | 4 | 250 | 3 |
Barmahlíð, Reykhólum | 0 | 0 | 0 |
Brákarhlíð Borgarnesi | 6 | 94 | 2 |
Dalbær, Dalvík | 6 | 137 | 3 |
Droplaugarstaðir, Reykjavík | 6 | 126 | 3 |
Dvalarheimilið Stykkishómi | 1 | 10 | 0 |
Eir, Reykjavík | 9 | 69 | 2 |
Fellaskjól, Grundarfirði | 3 | 87 | 1 |
Fellsendi, Dalasýslu | 1 | 375 | 1 |
Grenilundur, Grenivík | 1 | 31 | 0 |
Grund, Reykjavík | 8 | 78 | 2 |
Hamrar, Mosfellsbæ | 7 | 127 | 3 |
HSU Höfn, Hornafirði | 2 | 10 | 0 |
HSU Selfossi | 9 | 54 | 1 |
HSU Vestmannaeyjum | 1 | 80 | 0 |
HVE Stykkishólmi | 0 | 0 | 0 |
HVEST Patreksfirði | 1 | 296 | 1 |
Hjallatún, Vík | 0 | 0 | 0 |
HVEST Þingeyri – Tjörn | 2 | 256 | 1 |
Seltjörn, Seltjarnarnesi | 10 | 167 | 7 |
Hornbrekka, Ólafsfirði | 0 | 0 | 0 |
Boðaþing, Kópavogi | 13 | 105 | 4 |
Hrafnista Hlévangur | 2 | 157 | 2 |
Hrafnista Hraunvangur | 18 | 143 | 8 |
Ísafold, Garðabæ | 21 | 74 | 8 |
Hrafnista Laugarás | 24 | 96 | 10 |
Nesvellir, Reykjanesbæ | 8 | 108 | 4 |
Sléttuvegur, Reykjavík | 25 | 64 | 4 |
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 2 | 196 | 2 |
HSA Dyngja, Egilsstöðum | 7 | 154 | 4 |
HSA Fossahlíð, Seyðisfirði | 2 | 183 | 2 |
HSA Neskaupstað | 1 | 31 | 0 |
HSN Blönduósi | 3 | 23 | 0 |
HSN Fjallabyggð | 6 | 164 | 3 |
HSN Húsavík | 4 | 694 | 4 |
HSN Sauðárkróki | 7 | 527 | 7 |
Hulduhlíð, Eskifirði | 5 | 154 | 3 |
Hvammur, Húsavík | 5 | 182 | 2 |
HVE Hólmavík | 0 | 0 | 0 |
HVE Hvammstanga | 3 | 64 | 1 |
HVEST Berg, Bolungarvík | 1 | 16 | 0 |
HVEST Eyri, Ísafirði | 9 | 220 | 7 |
Höfði, Akranesi | 29 | 162 | 17 |
Jaðar, Ólafsvík | 1 | 140 | 1 |
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 2 | 24 | 0 |
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri | 0 | 0 | 0 |
Lundur, Hellu | 2 | 157 | 1 |
Mörk, Reykjavík | 37 | 190 | 24 |
Naust, Þórshöfn | 0 | 0 | 0 |
Roðasalir, Kópavogi | 3 | 182 | 2 |
Seljahlíð, Reykjavík | 0 | 0 | 0 |
Silfurtún, Búðardal | 0 | 0 | 0 |
Skjól, Reykjavík | 4 | 94 | 1 |
Skógarbær, Reykjavík | 7 | 108 | 4 |
Sóltún, Reykjavík | 6 | 100 | 3 |
Sólvangur, Hafnarfirði | 9 | 64 | 2 |
Sólvellir, Eyrarbakka | 1 | 10 | 0 |
Sundabúð, Vopnafirði | 0 | 0 | 0 |
Sunnuhlíð, Kópavogi | 8 | 90 | 2 |
Sæborg, Skagaströnd | 0 | 0 | 0 |
Uppsalir, Fáskrúðsfirði | 1 | 86 | 0 |
Víðihlíð, Grindavík | 4 | 243 | 4 |
Öldrunarheimili Akureyrar, Lögmannshlíð | 8 | 287 | 5 |
Öldrunarheimili Akureyrar, Hlíð | 25 | 281 | 16 |
Samtals | 390 | 187 |
Tafla 2: Fjöldi einstaklinga á biðlista eftir dvalarrýmum og meðalbiðtími í dögum, sundurliðað á hjúkrunarheimili.
Hjúkrunarheimili | Fjöldi á biðlista | Meðalbiðtími í dögum | Fjöldi sem beðið hefur lengur en 90 daga |
Ás, Hveragerði | 2 | 26 | 0 |
Brákarhlíð Borgarnesi | 5 | 181 | 2 |
Dalbær, Dalvík | 2 | 644 | 2 |
Fellaskjól, Grundarfirði | 1 | 44 | 0 |
Grund, Reykjavík | 1 | 60 | 0 |
Hrafnista Hraunvangur | 2 | 493 | 2 |
Hrafnista Laugarás | 1 | 185 | 1 |
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 4 | 219 | 4 |
HSN Blönduósi | 3 | 92 | 1 |
HSN Sauðárkróki | 12 | 491 | 9 |
Hvammur, Húsavík | 17 | 313 | 11 |
Höfði, Akranesi | 11 | 212 | 8 |
Jaðar, Ólafsvík | 2 | 107 | 1 |
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 2 | 251 | 2 |
Lundur, Hellu | 2 | 10 | 0 |
Silfurtún, Búðardal | 2 | 109 | 1 |
Sólvellir, Eyrarbakka | 1 | 435 | 1 |
Öldrunarheimili Akureyrar 2 – Hlíð | 10 | 391 | 7 |
Samtals | 80 | 52 |
3. Hvert er hlutfall þeirra sem hlotið hafa varanlega vist á hjúkrunar- og dvalarheimili og hafa færni- og heilsumat úr öðrum heilbrigðisumdæmum en viðkomandi heimili er í, sundurliðað eftir hjúkrunar- og dvalarheimilum?
Á árunum 2014–2018 var 4.721 dvalar- eða hjúkrunarrými úthlutað á landsvísu (þar sem skráð var hvaða færni- og heilsumatsnefnd hafði afgreitt umsókn um varanlega búsetu í dvalar- eða hjúkrunarrými). Af þeim var 179 veitt rými í öðru heilbrigðisumdæmi en færni- og heilsumat var gert, eða 3,8%. Á sama tíma var 335 dvalarrýmum úthlutað, þar af var 4,3% veitt í öðru heilbrigðisumdæmi en færni- og heilsumat var gert. Á eftirfarandi töflum má sjá sundurliðun eftir heimilum, annars vegar fyrir úthlutuðum hjúkrunarrýmum (tafla 3) og hins vegar fyrir úthlutuðum dvalarrýmum (tafla 4).
Tafla 3: Hlutfall úthlutaðra hjúkrunarrýma árin 2014–2018 þar sem færni- og heilsumat er framkvæmt af færni- og heilsumatsnefnd annars heilbrigðisumdæmis en hjúkrunarheimilið er í, sundurliðað á hjúkrunarheimili.
Heimili | Fjöldi úthlutaðra hjúkrunarrýma | Hlutfall veitt úr öðru heilbrigðisumdæmi |
Ás, Hveragerði | 89 | 20,2 |
Barmahlíð, Reykhólum | 10 | 90,0 |
Blesastaðir, Skeiðum | 1 | 0,0 |
Brákarhlíð Borgarnesi | 45 | 20,0 |
Dalbær, Dalvík | 22 | 4,5 |
Droplaugarstaðir, Reykjavík | 179 | 0,6 |
Dvalarheimilið Stykkishómi | 16 | 12,5 |
Eir, Reykjavík | 261 | 1,5 |
Fellaskjól, Grundarfirði | 7 | 14,3 |
Fellsendi, Dalasýslu | 21 | 81,0 |
Garðvangur, Garði | 4 | 0,0 |
Grenilundur, Grenivík | 8 | 0,0 |
Grund, Reykjavík | 418 | 2,6 |
Hamrar, Mosfellsbæ | 58 | 0,0 |
HSU – Höfn, Hornafirði | 47 | 6,4 |
HSU – Selfossi | 53 | 0,0 |
HSU – Vestmannaeyjum | 22 | 4,5 |
HVEST – Patreksfirði | 24 | 4,2 |
HSS Reykjanesbæ | 6 | 0,0 |
Hjallatún, Vík | 42 | 11,9 |
HVEST Þingeyri – Tjörn | 8 | 0,0 |
Hlévangur Keflavík | 1 | 0,0 |
Hornbrekka, Ólafsfirði | 28 | 7,1 |
Hrafnista Boðaþing | 80 | 2,5 |
Hrafnista Hlévangur | 59 | 1,7 |
Hrafnista Hraunvangur | 219 | 3,2 |
Hrafnista Ísafold | 97 | 1,0 |
Hrafnista Laugarás | 297 | 2,0 |
Nesvellir, Reykjanesbæ | 100 | 3,0 |
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 37 | 0,0 |
HSA – Dyngja Egilsstöðum | 62 | 0,0 |
HSA – Fossahlíð, Seyðisfirði | 26 | 0,0 |
HSA – Neskaupstað | 19 | 5,3 |
HSN Blönduósi | 27 | 7,4 |
HSN Fjallabyggð | 31 | 0,0 |
HSN Húsavík | 51 | 2,0 |
HSN Sauðárkróki | 59 | 1,7 |
Hulduhlíð Eskifirði | 19 | 0,0 |
Hvammur, Húsavík | 22 | 0,0 |
HVE Hólmavík | 11 | 18,2 |
HVE Hvammstanga | 20 | 5,0 |
HVEST – Berg, Bolungarvík | 17 | 5,9 |
HVEST – Eyri, Ísafirði | 60 | 8,3 |
Höfði, Akranesi | 77 | 10,4 |
Ísafold, Garðabæ | 59 | 0,0 |
Jaðar, Ólafsvík | 11 | 27,3 |
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 18 | 11,1 |
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri | 24 | 8,3 |
Kumbaravogur, Stokkseyri | 38 | 10,5 |
Lundur, Hellu | 58 | 8,6 |
Mörk, Reykjavík | 165 | 2,4 |
Naust, Þórshöfn | 10 | 10,0 |
Roðasalir, Kópavogi | 14 | 0,0 |
Seljahlíð, Reykjavík | 34 | 0,0 |
Silfurtún, Búðardal | 15 | 13,3 |
Skjól, Reykjavík | 168 | 0,6 |
Skógarbær, Reykjavík | 183 | 3,3 |
Sóltún, Reykjavík | 182 | 1,6 |
Sólvangur, Hafnarfirði | 139 | 2,9 |
Sólvellir, Eyrarbakka | 5 | 0,0 |
Sundabúð, Vopnafirði | 15 | 0,0 |
Sunnuhlíð – Vigdísarholt | 118 | 0,0 |
Sunnuhlíð, Kópavogi | 15 | 0,0 |
Sæborg, Skagaströnd | 8 | 0,0 |
Uppsalir, Fáskrúðsfirði | 28 | 0,0 |
Víðihlíð, Grindavík | 27 | 11,1 |
Öldrunarheimili Akureyrar 1 – Lögmannshlíð | 83 | 0,0 |
Öldrunarheimili Akureyrar 2 – Hlíð | 209 | 0,5 |
Samtals | 4.386 | 3,8 |
Tafla 4:Hlutfall úthlutaðra dvalarrýma árin 2014–2018 þar sem færni- og heilsumat er framkvæmt af færni- og heilsumatsnefnd annars heilbrigðisumdæmis en hjúkrunarheimilið er í, sundurliðað á hjúkrunarheimili.
Heimili | Fjöldi úthlutaðra dvalarrýma | Hlutfall veitt úr öðru heilbrigðisumdæmi |
Ás, Hveragerði | 23 | 13,0 |
Barmahlíð, Reykhólum | 2 | 50,0 |
Blesastaðir, Skeiðum | 6 | 0,0 |
Brákarhlíð Borgarnesi | 26 | 11,5 |
Dalbær, Dalvík | 24 | 0,0 |
Dvalarheimilið Stykkishómi | 12 | 8,3 |
Fell, Reykjavík | 4 | 0,0 |
Fellaskjól, Grundarfirði | 2 | 0,0 |
Grenilundur, Grenivík | 2 | 0,0 |
Grund, Reykjavík | 4 | 0,0 |
Heilbrigðisstofnun Suðurlands – Höfn, Hornafirði | 5 | 20,0 |
Hjallatún, Vík | 3 | 0,0 |
Hornbrekka, Ólafsfirði | 13 | 0,0 |
Hrafnista Hraunvangur | 35 | 5,7 |
Hrafnista Laugarás | 4 | 0,0 |
Hraunbúðir, Vestmannaeyjum | 11 | 0,0 |
HSN Blönduósi | 20 | 5,0 |
HSN Sauðárkróki | 17 | 0,0 |
Hvammur, Húsavík | 21 | 0,0 |
Höfði, Akranesi | 31 | 0,0 |
Jaðar, Ólafsvík | 8 | 0,0 |
Kirkjuhvoll, Hvolsvelli | 1 | 0,0 |
Klausturhólar, Kirkjubæjarklaustri | 5 | 40,0 |
Lundur, Hellu | 3 | 0,0 |
Silfurtún, Búðardal | 5 | 0,0 |
Sólvellir, Eyrarbakka | 16 | 0,0 |
Sæborg, Skagaströnd | 1 | 0,0 |
Uppsalir, Fáskrúðsfirði | 8 | 0,0 |
Öldrunarheimili Akureyrar, Hlíð | 23 | 0,0 |
Samtals | 335 | 4,2 |
4. Hversu margir þeirra, sem hafa færni- og heilsumat og eru á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrými, liggja á legudeildum heilbrigðisstofnana, þar á meðal Landspítala? Hvert er hlutfall legudaga þessara einstaklinga af heildarlegudögum viðkomandi legudeilda frá síðastliðnum áramótum?
Fjöldi þeirra einstaklinga sem voru með gilt færni- og heilsumat og biðu á Landspítala eftir varanlegu hjúkrunarrými voru að meðaltali 44 einstaklingar frá janúar og út nóvember árið 2019 og nýtti 9,8% þeirra legudaga sem nýttir voru á viðkomandi deildum á þeim tíma. Þetta er fyrir utan þá sem dvelja í biðrýmum á Vífilsstöðum sem eingöngu eru ætluð til þeirrar starfsemi en það eru 44 rými og eru fullnýtt.
Á Sjúkrahúsinu á Akureyri var fjöldi þeirra einstaklinga sem voru með gilt færni- og heilsumat í bið eftir varanlegu hjúkrunarrými að meðaltali 4,4 á hverjum tíma frá janúar og út nóvember árið 2019 og nýtti 3,35% þeirra legudaga sem nýttir voru á viðkomandi deildum á þeim tíma.
Ekki var unnt að kalla þessar upplýsingar fram á öðrum heilbrigðisstofnunum og voru þær því beðnar um punktstöðu 12. desember sl. með tilliti til fjölda inniliggjandi einstaklinga á biðlista eftir varanlegu hjúkrunar- eða dvalarrými og hlutfalli þeirrar nýtingar rúma á heildarfjölda rúma á viðkomandi stofnun.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja voru þrír einstaklingar inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það nýtingu 15,4% rúma á þar.
Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi voru átta einstaklingar inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 28,6% nýtingu rúma þar.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði var einn einstaklingur inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 6,7% nýtingu rúma þar.
Á Heilbrigðisstofnun Norðurlands var einn einstaklingur inniliggjandi á Húsavík og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 12,5% nýtingu rúma þar og á Sauðárkróki voru þrír inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými sem samsvaraði 42,8% nýtingu rúma þar.
Á Heilbrigðisstofnun Austfjarða var einn einstaklingur inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 4,3% nýtingu rúma þar.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands voru þrír einstaklingar inniliggjandi á Selfossi og á biðlista eftir hjúkrunarrými og samsvaraði það 16,7% nýtingu rúma þar og í Vestmannaeyjum voru þrír inniliggjandi og á biðlista eftir hjúkrunarrými sem samsvaraði 20% nýtingu rúma þar.
Deila
- Share