Harðasta trúboðið er boðun vantrúar, þar hittir maður hina fanatísku fyrir.
Ragnar Önundarson skrifar:
Þjóðkirkjan er mikilvægur þrándur í götu einkavæðingar trúfélaga. Fátt er ógeðfelldara en að gera trú að uppsprettu einkagróða eins og víða tíðkast. Án þjóðkirkju mundu trúboðar hanga á dyrabjöllum okkar. Í upplýstu nútímasamfélagi er trúboð dónaskapur. Harðasta trúboðið er boðun vantrúar, þar hittir maður hina fanatísku fyrir.