Hluthafar og forstjórar fákeppnisfélaganna í SA hafa tekið það sem þeim sýnist til sín og velt út í verðlagið.
Ragnar Önundarson skrifar:
Mbl. dagsins setur alla ábyrgð í launamálum á verkalýðshreyfinguna. Hið blandaða hagkerfi byggist hins vegar á jafnvægi. Launamunur hefur verið að aukast. Hluthafar og forstjórar fákeppnisfélaganna í SA hafa tekið það sem þeim sýnist til sín og velt út í verðlagið, sem launafólk borgar. Til að leita jafnvægis á ný þarf verkalýðshreyfingin að ná vopnum sínum. Jafnvægið næst ekki átakalaust.