Svei þessum stjórnmálaflokkum á Íslandi sem allir styðja þetta glæpsamlega kerfi.
Katrín Baldursdóttir skrifar:
Þörfin fyrir sósíalisma hefur aldrei verið meiri. Ríkir karlar raka saman peningum, borga ekki skatta og skilja þjóðir eftir í rjúkandi rúst, sérstaklega konur. Nútíma kapítalismi er hannaður fyrir þessa menn. „Ef allir myndu sitja á auð sínum þannig að honum yrði raðað upp í bunka af 100 dala seðlum, þá myndi þorri mannkyns sitja á gólfinu. Einstaklingur í miðstétt í ríku landi myndi sitja í svipaðri hæð og ef hann sæti á stól. Tveir ríkustu menn í heimi myndu sitja í himingeimnum.“
Svo vilja sósíaldemókratar sem segjast aðhyllast jöfnuð halda í þetta kerfi á þeim forsendum meðal annars að halda í alþjóðasamvinnu á grundvelli kapítalisma. Þvílík blekking. Við sósíalistar viljum alþjóðasamstarf með samvinnu en ekki samkeppni, mannhelgi, frelsi og raunverulegan jöfnuð að leiðarljósi en ekki á grundvelli græðgi og glæpum ríkra karla. Svei þessum stjórnmálaflokkum á Íslandi sem allir styðja þetta glæpsamlega kerfi.