Helga Vala skrifaði:
Hvað gengur fjármálaráðherra til með þessari skítapillu?
„Bréf héraðsaksóknara er dagsett 21. nóvember sem er örfáum
dögum fyrir þriðju umræðu fjárlaga. Undir venjulegum kringumstæðum tökum við
við slíkum beiðnum á vorin þannig að þetta er að koma fram ótrúlega seint.“
Átti Héraðssaksóknari að fá á tilfinninguna í vor að
Samherjamál kæmi inn á borð til hans undir lok haustþings? Það er augljóst að
embættið þarf aukið fé. Töluvert aukið fé, enda flæðir þetta mál um fjölda
ríkja. Ríkisstjórnarflokkarnir felldu hins vegar tillögu okkar í þarsíðustu
viku, en segja núna, þessi beiðni er komin fram ótrúlega seint, en við finnum
einhverja sjóði.