„Vissir þú að atvinnuleysi í júní var 6% af mannafla? Það fór hæst í 8% eftir hrun. Og vissir þú að verðbólgan er nú 3,3% frá sama tíma í fyrra. Kauphækkunin sem verkalýðsfélögin féllust á nú í vor dugir því ekki til að halda í horfinu enda heldur verðlag áfram að hækka. Og gengið sígur neðar og neðar. Ekkert skil ég í þeim sem áttu von á öðru en þessu.“
Fengið af Facebooksíðu Þorvaldar Gylfasonar.