Dómur er fallinn. Þingmönnum Sjálfstæðisflokksins skal refsað. „Það er rétt að þeir viti af því, að þótt þeir hafi atkvæðin í sínum höndum á Alþingi eru það aðrir, sem hafa þau utan þess.“
Þetta má meðal annars lesa í opinberri yfirlýsingu sem birt er í Staksteinum dagsins. Ástæða þess er að þingmenn flokksins munu allir, nema kannski Ásmundur Friðriksson, greiða þriðja orkupakkanum atkvæði þegar þar að kemur.+
Þar er þessi greining á ólíkri stöðu stjórnarflokkanna þriggja:
„Þingmenn Framsóknarflokksins þegja flestir enda gera þeir sér áreiðanlega ljóst að þeir kunna að vera að rétta upp hendina með því að þurrka flokk sinn út.
Þingmenn VG virðast lifa í einhvers konar tómarúmi, sem bendir til að þeir viti ekki lengur hverjir þeir eru eða hvaðan þeir koma.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru kokhraustari.
En háttsemi þeirra bendir til að þeir átti sig ekki á því að það kemur dagur eftir þennan dag. Þeir virðast a.m.k. ekki hafa nokkurn áhuga á því að hljóta endurnýjað umboð frá flokksfélögum og kjósendum.
Það er rétt að þeir viti af því, að þótt þeir hafi atkvæðin í sínum höndum á Alþingi eru það aðrir, sem hafa þau utan þess.“
Það er Styrmir Gunnarsson sem skrifar greininguna og Davíð Oddsson, sem er efa lítið höfundur Staksteina, gerir að sinni. Tekur hraustlega undir með Styrmi.
Þingmenn Miðflokksins eru trúlega ósáttum Sjálfstæðisflokksins að skapi. Hvað verður er nokkuð spennandi. Sú staða sem er uppi í Sjálfstæðisflokki er eflaust allt að því óþolandi.