Neytendur „Raunvöxtur kortaveltu einstaklinga í júní síðastliðnum nam 7,3% frá sama mánuði í fyrra,“ segir í morgunikorni Íslansbanka,en þetta er samkvæmt tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun.
Þar af jókst kortavelta innanlands að raungildi um 5,6% en kortavelta erlendis um 20,6%. Vöxturinn er ámóta og hann var í maí, og bendir allt til þess að vöxtur einkaneyslu muni mælast umtalsverður á 2. fjórðungi ársins.
Ekki verið bjartsýnni eftir hrun
En hvað er það sem við gerum? Skoðum það betur. Kortavelta einstaklinga jókst að jafnaði um 5,1% að raungildi á 2. ársfjórðungi 2014 frá sama tíma árið áður. Þar af jókst kortavelta innanlands um 3,4% en kortavelta erlendis um 19,0%. „Aðrar vísbendingar um neyslu heimilanna eru á sama veg. Þannig var gríðarleg fjölgun á nýskráningum bifreiða samkvæmt tölum frá Samgöngustofu, en bifreiðakaup eru stór hluti þeirrar einkaneyslu sem ekki er greidd með greiðslukortum. Einnig má nefna að Væntingavísitala Gallup (VVG) tók heldur betur við sér í júní sl., og fór upp fyrir 100 stigin og jafnframt í sitt hæsta gildi frá því í febrúar 2008.“
Sama má segja af nýjustu ársfjórðungsmælingu stórkaupavísitölu Gallup, sem birt var samhliða VVG í júnímánuði, sem náði einnig sínu hæsta gildi frá september 2008. „Þýðir það m.ö.o. að íslenskir neytendur eru líklegri til þess að ráðast í stórkaup nú en þeir hafa verið frá hruni, þ.e. að festa kaup á húsnæði eða bifreið á næstu sex mánuðum, eða ferðast til útlanda á næstu tólf mánuðum. Í þessu sambandi má nefna að tölur Ferðamálastofu hafa sýnt mikla fjölgun í utanlandsferðum, og í raun höfðu ekki jafn margir Íslendingar haldið erlendis í einum mánuði og í júní sl. síðan fyrir hrun.“
Einkaneyslan eykst á árinu
Sé tekið mið af fyrri helming ársins þá hefur kortavelta einstaklinga aukist um 5,3% að raunvirði frá sama tímabili í fyrra. „Við teljum líkt og aðrir að einkaneyslan muni vega mun þyngra í hagvexti þetta árið en hún gerði í fyrra þegar utanríkisviðskipti, þá sér í lagi gríðarlegur vöxtur ferðaþjónustunnar, drógu hagvaxtarvagninn að langmestu leyti. Ríma því tölur fyrir þróunina það sem af er ári ágætlega við spá okkar um 4,2% einkaneysluvöxt á árinu í heild, en þar gerðum ráð fyrir að eitthvað myndi hægja á vexti einkaneyslunnar eftir því sem liði á árið,“ segir í morgunkorni Íslandsbanka.