- Advertisement -

Orkupakkinn og krossfestingin

Þeir brutu ísinn, og innleiddu úr honum stóra hlúnka löngu áður en þess var þörf.

Össur Skarphéðinsson skrifar:

Á degi krossfestingarinnar er einkar vel til fundið hjá miðli allra landsmanna – Stundinni – að rifja upp að þegar Sigmundur Davíð var forsætisráðherra þá virtist hann hugfanginn af þriðja orkupakkanum. Honum lá amk. svo á að taka hann upp í íslensk lög að hann barði gegnum Alþingi samþykkt á einum mikilvægasta hluta pakkans – löngu áður en hann var tekinn upp í EES samninginn.

Jafnvel okkur ræflunum sem vorum þó bæði hlynnt orkupakka og Evrópusambandi þótti nóg um asann. En þetta var á þeim dögum þegar núverandi formaður Miðflokksins átti löng samtöl við Breta, m.a.s. sjálfan David Cameron, forsætisráðherra Breta, um sölu á raforku um streng til Bretlands.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Þessu greiddu atkvæði bæði Sigmundur Davíð, Gunnar Bragi Sveinsson, Þorsteinn Sæmundsson – sem allir eru þingmenn Miðflokksins í dag.

Í Bretlandi bjuggust menn reyndar við að Sigmundur myndi boxa Cameron út af Icesave, og fjölmiðlar urðu undrandi á því hversu vel fór á með þeim í Íslandsheimsókn Camerons. Þar slitnaði ekki slefan á milli. Breskir fjölmiðlar gátu þess að hann hefði farið viðurkenningarorðum um Davíð Cameron sem „guðföður“ tengslahóps norðurevrópskra ríkja. Gárungar veltu fyrir sér hvort nóg væri að menn hétu Davíð til að íslenski forsætisráðherrann fengi á þeim pólitíska ást.

Athyglisverðast við þröngvun núv. formanns Miðflokksins á mikilvægri löggjöf orkupakkans gegnum þingið var að hún laut einmitt að orkusölu um streng til útlanda. Þar var bókstaflega talað um að taka þyrfti mið af „raunhæfum sviðsmyndum“ um orkusölu.

Þessu greiddu atkvæði bæði Sigmundur Davíð, Gunnar Bragi Sveinsson, Þorsteinn Sæmundsson – sem allir eru þingmenn Miðflokksins í dag. Meira að segja helsti baráttumaður gegn orkupakkanum í dag, Frosti Sigurjónsson, gerði það líka. Hann hefur sem kunnugt er stofnað sérstök samtök gegn orkupakkanum sem hann studdi þó á þessum degi.

VG var sem kunnugt er á móti orkupakkanum þangað til flokkurinn fór í ríkisstjórn. Á þessum tíma lagði því VG fram tillögu um að fella að minnsta kosti burt orðalag um stuðning við raforkusölu um streng til útlanda.

Meira að segja helsti baráttumaður gegn orkupakkanum í dag, Frosti Sigurjónsson, gerði það líka. Hann hefur sem kunnugt er stofnað sérstök samtök gegn orkupakkanum sem hann studdi þó á þessum degi.

Sigmundur kallinn Davíð hafnaði því og greiddi atkvæði á móti. Hann studdi semsagt að hafa inni ákvæði um „raunhæfar sviðsmyndir“ um orkusölu til útlanda. Ekki bara hann. Allir núverandi þingmanna Miðflokksins sem þá sátu á Alþingi voru sama sinnis. Meira að segja heiðursmaðurinn og samviska góðra Framsóknarmanna, Frosti Sigurjónsson, greiddi atkvæði gegn brottfellingunni

Í þá daga sat Sigmundur á hjali við breskan forsætisráðherra um möguleika á því að selja rafmagn til Bretlands. Í dag hentar það Miðflokknum að berjast gegn orkupakkanum af því hugsanlega nær hann útá það að tína til sín einhver atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum. Svona eru íslensk stjórnmál í dag.

Það breytir engu um þá staðreynd, að það var Sigmundur Davíð og hans menn í Miðflokknum sem ruddu brautina fyrir orkupakkann. Þeir brutu ísinn, og innleiddu úr honum stóra hlúnka löngu áður en þess var þörf.

Þetta er hollt að rifja upp á degi krossfestingarinnar.

Skrifin eru fengin af Facebooksíðu Össurar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: