Lífeyrir aldraðra og öryrkja á að vera skattfrjáls eins og áður.
Björgvin Guðmundsson skrifar:
Þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp var lífeyrir aldraðra og öryrkja skattfrjáls. Hann er skattfrjáls í Noregi. Stjórnmálamenn lofuðu því hér, að skattleysismörkin mundu hækka í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs. Það var svikið.
Ef staðið hefði verið við það væri lífeyrir skattfrjáls í dag eins og áður. En í stað þess að standa við skattfrelsi lífeyris er BB nú að bjóða öldruðum og öryrkjum 2% lækkun á sköttum eins og verkafólki er boðið. Þetta er hungurlús, sem ekkert gagn er í. Lífeyrir aldraðra og öryrkja á að vera skattfrjáls eins og áður. Og lægstu laun eiga að vera skattfrjáls.