„Ég ætla rétt að vona að Þorsteinn
Sæmundsson hafi ekki verið að prufukeyra nýja taktík í umræðum um þungunarrof á
mér þegar hann spurði mig endurtekið hvort ég hefði persónulega reynslu af því
í andsvörum við ræðu mína í kvöld,“ skrifar Þórhildur Sunna Ævarsdóttur Pírati
um Þorstein Sæmundsson Miðflokki.
„Ég ætla rétt að vona að þingkonur þurfi ekki almennt að eiga
von á því að Miðflokksmenn spyrji þær út í sína „persónulegu reynslu“ af
þungunarrofi þegar við höldum áfram umræðum um lög um þungunarrof í vetur. Þá
yrði held ég ákveðnum botni náð á þeim bænum.“
Miðjan
Ritstjóri Miðjunnar.