Þau eru sammála um að fullkomin stöðnun verði í lífskjörum þeirra verst settu.
Sigurjón M. Egilsson skrifar:
Ríkisstjórn Bjarna og Katrínar fær varla meira svigrúm hjá þjóðinni. Þau hafa leikið of marga afleiki. Áfram verður ekki haldið. Skömm þeirra er mikil. Meiri en nóg.
Blekkingarleikur þeirra í skattamálunum var hvoru tveggja, óheiðarlegur og barnalegur. Héldu þau virkilega að talnaglöggt fólk myndi kíkja sjónarspili Bjarna hráu og ómeltu? Ó, nei.
Vilhjálmur Birgisson rauk ekki bara einn af skrípafundinum í stjórnarráðinu. Megin þorri launafólks fylgdi honum, í huga sér. Vilhjálmur sýndi hárrétt viðbrögð. Fólk á ekki að sitja þegjandi undir hverju sem er.
Þetta gengur ekki lengur. Nú þarf mikið að koma til. Auðvaldið nær sífellt meiri og betri tökum á sameiginlegum auði þjóðarinnar og auðlindum hennar. Nú hafa Bjarni og Katrín opinberað sig svo ekki verður um villst hvað býr í huga þeirra.
Þau eru sammála um að fullkomin stöðnun verði í lífskjörum þeirra verst settu. Það má aldrei verða. Það verður að stöðva áform þeirra.
Þjóðin kann aðferðina, hefur beitt henni áður og þarf sýnileg að grípa til neyðaraðgerða nú.