Ráðherrann heimilar nafna sínum að veiða um 200 hvali á ári.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið umfangsmiklar hvalveiðar.
Hann segir ákvörðunina byggða á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Og ekki síður á nýlegri skýrslu Hagfræðastofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða.
Hafrannsóknastofnunin ráðleggur að árlegar veiðar á tímabilinu 2018–2025 verði að hámarki 161 langreyður á veiðisvæðinu Austur-Grænland/Vestur-Ísland og að hámarki 48 dýr á svæðinu Austur-Ísland/Færeyjar og 217 hrefnur á íslenska landgrunnssvæðinu.
Kristján Loftsson og fyrirtæki hans fá að veiða yfir 200 hvali á ári næstu árin.
Afstaða ráðherra kemur eflaust ekki á óvart.