Engin samkeppni á fjármálamarkaði
Þetta fjármálakerfi er ósamkeppnishæft.
„Það er engin samkeppni á innlendum fjármálamarkaði. Ábyrgðin á því samkeppnisleysi liggur auðvitað að stórum hluta hjá eigandanum að stærstum hluta þess, þ.e. ríkinu sjálfu,“ sagði Þorsteinn Víglundsson á Alþingi í dag.
„Það er enginn þrýstingur af hálfu eigandans á að hér sé virk samkeppni á fjármálamarkaði. Fjármálakerfi sem er ekki samkeppnishæft á alþjóðavísu er byrði á því samfélagi sem það starfar í. Þetta fjármálakerfi er ósamkeppnishæft og allt of dýrt. Það er byrði á litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem ekki eiga kost á annarri fjármögnun. Það er byrði á íslenskum heimilum sem þurfa að rísa undir háum þóknanakröfum bankanna og háum fjármagnskostnaði. Það er orðið löngu tímabært að á þessu sé tekið, svo ekki sé nefnt það sem mestu máli skiptir í þessu sem er auðvitað kostnaðurinn sem af gjaldmiðlinum hlýst og verndin sem gjaldmiðillinn skapar þessu innlenda fjármálakerfi til þess að starfa án nokkurrar samkeppni,“ sagði þingmaðurinn.