Bjarni segir að mörg veitingahús í miðborginni séu að “fara á hausinn“
- á sama tíma er undribúningur að fjölmörgum nýjum veitingahúsum í miðborginni á teikniborðinu. Byggingarfulltrúi í Reykjavík hefur afgreitt tugi umsókna í ár vegna veitingarekstrar í miðborginni.
„Hvernig ganga veitingastaðir í miðborginni? Mér sýnist að þeir séu margir að fara á hausinn,“ sagði Bjarni fjármálaráðherra í ræðustól Alþingis í gær.
Í Mogganum í dag er frétt um hið gagnstæða. Þar segir sem dæmi: „Veiking krónunnar í haust ætti að óbreyttu að styrkja rekstrargrundvöll veitingahúsa í miðborginni.“
Og ekki nóg með það. Byggingafulltrúinn hefur afgreitt fleiri leyfi, til reksturs veitingastaða, en nokkru sinni áður. „Byggingarfulltrúi í Reykjavík hefur afgreitt tugi umsókna í ár vegna veitingarekstrar í miðborginni. Samkvæmt lauslegri athugun á fundargerðum hjá byggingarfulltrúa hafa um fjörutíu slíkar umsóknir verið afgreiddar á árinu. Eru hér undanskildar umsóknir sem höfðu verið afgreiddar en verið lagðar fram á ný með ósk um breytingar,“ segir í Moggafréttinni.
Orð Bjarna féllu þegar hann varðist Samfylkingunni og vilja hennar til breytinga á fjárlagafrumvarpinu og hugmyndum um aukna skattheimtu á fyrirtækin.
„Og menn segja: Það er ekkert mál að taka meira af ferðaþjónustunni. Hver er staðan í ferðaþjónustunni í dag? Gengur vel? Berjast menn í bökkum? Hvernig ganga veitingastaðir í miðborginni? Mér sýnist að þeir séu margir að fara á hausinn.
Bíddu, af hverju hækka menn ekki bara gjaldið á ferðamennina? Af hverju hækka menn ekki gjaldið t.d. á bílaleigubíla eða hótelreikningana eða þjónustuna í borginni? Hvers vegna hækka menn það ekki?
Það er vegna þess að það er ekki svigrúm. Þeir sem eru með taprekstur eða engan afgang myndu undir venjulegum kringumstæðum, ef það væri svigrúm, hækka gjöldin. En þá kemur háttvirtur þingmaður og segir: Ja, það er ekki vandamál, við skulum bara auka skattheimtuna af því sama fólki, nýjan skatt á ferðaþjónustuna, komum aftur með sykurskattinn, sem mun engu breyta í neysluvenjum, ekki frekar en síðast. Hann mun hækka matvöru, hann mun hækka verðlag. Að hækka skatta endalaust eru einu hugmyndirnar sem menn hafa úr þessari átt,“ sagði Bjarni fjármálaráðherra.