Saksóknarinn genginn í náhirð Davíðs
- segir Jón Ásgeir Jóhannesson, sem segir gögn Morgunblaðsins, vera úr skúffu saksóknarans.
„Frá því um aldamótin síðustu hefur það verið einlægur vilji Davíðs Oddssonar og hans nánustu fylgisveina að koma mér á bak við fangelsismúra. Í þeim tilgangi hefur sú hirð misbeitt valdi sínu og áhrifum, m.a. með beinum hætti á ríkislögregluna á árinu 2002 og síðar. Enn hefur þessari þrá þeirra ekki verið svalað og nú tæpum tuttugu árum síðar birtist þetta sjúklega hugarástand á síðum Morgunblaðsins.“
Þannig skrifar Jón Ásgeir Jóhannesson.
Orð og gerðir úr sambandi
Það er í anda vinnubragða þeirra að þegar væntanlegur er dómur á næstu dögum í máli sem ég er ákærður í sem hlutdeildarmaður, að reynt sé að hafa áhrif á dómsniðurstöðuna með því að láta blaðamann skrifa „fréttaskýringu“ á heila opnu Morgunblaðsins með forsíðuvísun. Í umfjölluninni eru orð og gerðir slitin úr samhengi og reynt að skapa þau hughrif lesandans, og þá væntanlega dómenda Landsréttar líka, að málið snúist bara um mig. Allt í þeim tilgangi að láta þennan gamla og rætna draum ritstjórans rætast.
Úr skúffu saksóknara
Það er augljóst að uppruni gagnanna er beint úr skúffu saksóknara. Það er merkilegt að saksóknari árið 2018 láti ekki nægja að flytja málið fyrir dómi, heldur taki upp á því að taka sér stöðu með náhirð Davíðs Oddssonar og haldi málflutningi áfram á síðum Morgunblaðsins.
Sannleikurinn ekki alltaf sagna bestur í Hádegismóum
Málið er nú í þriðja skipti fyrir dómi. Í hin tvö skiptin hef ég verið sýknaður. Ég trúi því að sama niðurstaða verði raunin á næstu dögum og Landsréttur sjái hið augljósa í málinu; að Glitnir banki hf. var betur settur eftir viðskiptin en fyrir, eins og staðfest var af þremur fræðimönnum úr háskólasamfélaginu við meðferð málsins og sem hlýtur að leiða til sýknu allra ákærðu. Þessa staðreynd kaus Morgunblaðið að leiða hjá sér í umfjöllun sinni. Hún þjónar sennilega ekki lund ritstjórans, enda sannleikurinn ekki alltaf sagna bestur í Hádegismóum,“ skrifar Jón Ásgeir Jóhannesson.