Jón Magnússon skrifar: „Spillingarfnykinn leggur af Samfylkingunni, Viðreisn, Vinstri Grænum og Pírötum í borgarstjórn. Fulltrúar þeirra koma í veg fyrir hlutlæga rannsókn hlutlausra aðila á braggahneykslinu.
Sú sundurliðun sem þegar hefur verið birt, sýnir algjört aðhaldsleysi og spillingu þeirra sem stýra fjármálum Reykjavíkurborgar. Meirihlutaflokkarnir í borgarstjórn hafa ákveðið að mynda skjaldborg til að breiða yfir spillinguna.
Það er raunar eina skjaldborgin sem Samfylkingin hefur nokkru sinni myndað.“
Þú gætir haft áhuga á þessum