- Advertisement -

Þau standa með flugfreyjum

Við undirrituð mótmælum harðlega þeim aðgerðum sem stjórn Icelandair hyggst ráðast í gegn flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá fyrirtækinu. Í ljósi þess að stjórn félagsins hefur á síðastliðnum tveimur árum greitt hluthöfum rúman 1,3 milljarð í arð vekur það furðu að ráðast eigi að atvinnuöryggi þeirra sem gert hafa rekstur fyrirtækisins mögulegan; þeim sem unnið hafa vinnuna, með því að banna hlutastörf.

Hvernig væri að stjórnendur félagsins byrjuðu á því að axla ábyrgð á stöðu þeirri sem komin er upp hjá Icelandair með því að afsala sér ofurlaunum og kaupaukagreiðslum, upphæðum sem eru margföld laun vinnuaflsins á íslenskum vinnumarkaði? Á meðan það er ekki gert er allt tal um háan launakostnað Icelandair algjörlega ómarktækt.

Eins og svo oft áður í íslensku samfélagi beinast aðgerðirnar að stórri kvennastétt sem ætlast er til að beri byrðar „hagræðingar“ og sparnaðar. Enn á ný sjáum við hversu kerfisbundin kvenfyrirlitningin er í þjóðfélaginu og hvernig hagsmunir efnahagslegra forréttindahópa vega ávallt þyngra en virðing fyrir kvennastörfum.

Kapítalísk græðgisvæðing býr til efnahagslegan óstöðugleika, ekki kröfur vinnuaflsins um sanngirni, það hefur sagan kennt okkur og því fordæmum við að ráðist skuli með þessum hætti að hagsmunum starfsfólks Icelandair.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við lýsum yfir samstöðu með flugfreyjum og flugþjónum í baráttu þeirra fyrir virðingu og réttlæti. Við hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama.

Með baráttukveðju, 
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar – stéttarfélags
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: