Kvótinn kæfir byggðarlögin
„Vandinn sem við stöndum frammi fyrir í minni sjávarbyggðum er að undirstaða þorpsins er oft í höndum eins fyrirtækis.“
„Til dæmis hefur íbúum minnstu sjávarbyggða landsins fækkað um 37% frá 1984 til 2017,“ sagði Arna Lára Jónsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, á Alþingi.
Hún sagði: „Sjávarbyggðir landsins hafa mátt þola ýmis skakkaföll í sjávarútvegi síðustu áratugina og ekki síst með tilkomu kvótakerfisins sem var í senn ætlað að vernda fiskstofnana og stuðla að hagræðingu í sjávarútvegi. Sú hagræðing hefur haft verulega neikvæð áhrif á margar sjávarbyggðir, sérstaklega smærri þorp sem eru fjarri stærri og öflugri atvinnusvæðum. Til dæmis hefur íbúum minnstu sjávarbyggða landsins fækkað um 37% frá 1984 til 2017.“
Arna Lára sagði einnig: „Vandinn sem við stöndum frammi fyrir í minni sjávarbyggðum er að undirstaða þorpsins er oft í höndum eins fyrirtækis eins og við þekkjum fjölmörg dæmi um. Þess vegna er mikilvægt að gefa þeim kost á að þróast áfram og finna nýjar undirstöður undir byggðina.“
Myndin með fréttinni er frá Breiðdalsvík. Samherji keypti upp aflaheimildir staðarins og flutti burt, sem hafði miklar afleiðingar fyrir byggðina.