Segir svigrúmið minna en ekkert
Baráttan gegn fólkinu sést skýrast í Mogganum. Ritstjórinn leitaði og fann ekkert svigrúm. Telur forystufólk verkalýðsfélaga fara gegn hagsmunum almennings.
Þar sem rétt þrír mánuðir eru þar til kjarasamningar verða lausir telur það fólk, sem verjast þarf launafólki, tímabært að þétta raðirnar. Berjast gegn fólkinu.
Davíð Oddsson er gerður út frá Borgartúni 35, húsinu þar sem lobbýistarnir búa. Davíð grípur til þess að draga upp efasemdir um fólk eins og Ragnar Þór og Sólveigu Önnu.
„Forkólfar verkalýðshreyfingarinnar, með stuðning um það bil tíunda hvers félagsmanns á bak við sig, fara nú mikinn í umræðum um kjaramál í aðdraganda kjarasamninga. Þeir horfa alfarið framhjá aðstæðum í atvinnulífinu og halda því fram að mikið svigrúm sé til launahækkana,“ skrifar hann í Staksteina dagsins.
Rök Davíðs verða seint metin vermæt. Hann heldur áfram:
Miklar launahækkanir nú væru hættuspil. (Kanntu annan).
„Þó ætti þeim að vera ljóst að svigrúmið til launahækkana er svo að segja ekkert og jafnvel minna en það, eins og umræður hafa sýnt og þrýstingur víða á hagræðingu og jafnvel uppsagnir.“
Og svo segir Moggaritstjórinn: „Ólíkt forkólfunum í verkalýðshreyfingunni skilur almenningur vel að miklar launahækkanir nú væru hættuspil. Í könnun sem Gallup gerði nýlega fyrir Samtök atvinnulífsins má sjá að mun fleiri vilja að í komandi kjarasamningum verði lögð áhersla á að stuðla að lágri verðbólgu með hófstilltum launahækkunum en að hækka laun verulega. Forkólfarnir, sem láta eins og þeir tali í nafni almennings, hljóta að þurfa að taka tillit til sjónarmiða almennra launamanna en ekki aðeins sjálfra sín og lítils en háværs hóps stuðningsmanna sinna.“
Þau eru ígrönduð vindhöggin í Hádegismóum:
„Þeir voru ekki kosnir (af tíunda hverjum félagsmanni) til að valda hér kollsteypum með óábyrgum málflutningi. Lýðræðishallinn í verkalýðshreyfingunni er áhyggjuefni, en hann má ekki verða þjóðarmein.“