- Advertisement -

Hver ákvað að Pia ávarpaði Alþingi?

„Hvaða ástæður hefðu nægt til að forseti Alþingis hefði afturkallað boð sitt til forseta danska þingsins á hátíðarþingfundinn á Þingvöllum og hversu langan fyrirvara hefði þurft að hafa til að sómi hlytist af?“

Jón Þór Ólafsson, einn af varaforsetum Alþingis, hefur lagt fram fyrirspurn til forseta Alþingis, Steingríms J. Sigfússonar, um komu og þátttöku Piu Kjærsgaard í fundi Alþingis á Þingvvöllum í sumar.

Þyngsta spurningin er þessi: „Hvenær var forseta danska þingsins formlega boðið að flytja ávarp á hátíðarþingfundi á Þingvöllum 18. júlí 2018? Hver tók þá ákvörðun og hvenær, og hvernig var ákvörðunarferlinu háttað? Óskað er eftir afriti af öllum samskiptum milli skrifstofu Alþingis og danska þingsins auk annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á þessa ákvörðun, undirbúning hennar og framkvæmd.“

Jón Þór spyr einnig: „Hver ber ábyrgð á þeim hluta alþjóðastarfs Alþingis að bjóða fulltrúum erlendra ríkja til Íslands fyrir hönd þingsins?“

„Hvenær og með hvaða hætti voru fulltrúar í forsætisnefnd og formenn þingflokka upplýstir um að fyrirhugað væri að bjóða forseta danska þingsins á hátíðarþingfundinn í krafti embættis síns? Hvenær og með hvaða hætti voru þeir upplýstir um það þegar honum hafði verið boðið?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Leit forseti Alþingis svo á að birting tilkynningar um málið á vef Alþingis 20. apríl 2018 fullnægði upplýsingaskyldu hans gagnvart forsætisnefnd og þingflokksformönnum? Ef ekki, hvernig ber að hátta upplýsingagjöf svo að hún teljist fullnægjandi þegar fulltrúum erlendra ríkja er boðið til Íslands á vegum Alþingis? Óskað er eftir afriti af dagskrá funda, dagskrárskjölum og af þeim liðum fundargerða forsætisnefndar og funda forseta Alþingis með þingflokksformönnum sem varpað geta ljósi á málið.“

„Hvaða ástæður hefðu nægt til að forseti Alþingis hefði afturkallað boð sitt til forseta danska þingsins á hátíðarþingfundinn á Þingvöllum og hversu langan fyrirvara hefði þurft að hafa til að sómi hlytist af?“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: