„Búvörusamningurinn lélegasti samningur sem um getur“
Fyrverandi fjármálaráðherra ósáttur með ríkisstjórnina. „Líklega munu systurflokkarnir þrír í ríkisstjórn sameinast um viðnám gegn hag neytenda á komandi vetri. Orðið frelsi er merkingarlaust í þessum flokkum. Nema auðvitað frelsi vildarvina þeirra.“
„Líklega er búvörusamningurinn lélegasti samningur sem um getur. Nærri lætur að hann megi kenna við hamfarir af mannavöldum. Fyrsta gildisárið var ekki liðið þegar sauðfjárbændur þurftu að taka á sig rúmlega þriðjungs verðlækkun, vegna þess að samningarnir hvöttu til offramleiðslu. Ekki er hægt að hugsa sér verri samninga en þá sem draga úr vöruúrvali, hækka verð til neytenda, auka ríkisútgjöld og leiða til verri afkomu fyrir bændur, sem eru ekki öfundsverðir af sínum launum, sem eru lægri en hjá flestum, ef ekki öllum, öðrum stéttum,“ þetta má meðal annars les í grein Benedikt Jóhannessonar, stofanda Viðreisnar, sem birtist í Mogga dagsins.
„Með þessum flokkum saman…“
„Þegar búvörusamningarnir voru samþykktir á sínum tíma (með atkvæðum 19 þingmanna) með 15 milljarða árlegu fjárframlagi til landbúnaðarins var lofað að rýmkað yrði um tollkvóta á sama tíma, neytendum til heilla. Þetta var auðvitað svikið af stjórnarmeirihlutanum á Alþingi síðastliðið vor. Engan undrar að þessi stjórn skuli þannig snúast gegn lægra verðlagi og fjölbreyttara úrvali af matvöru. Með þessum flokkum saman gat útkoman ekki orðið önnur“ skrifar Benedikt einnig.
„Kampavín er drykkur ríkisstjórnarinnar.“
Kostar hvert heimili allt að 300 þúsund
„Stuðningur ríkisins við landbúnaðinn kemur aðallega fram með tvennum hætti: Bein útgjöld ríkisins vegna búvörusamnings og miklu hærra verð til neytenda en ella vegna tollverndar og innflutningshafta. Alls kostar stuðningurinn samfélagið nálægt 40 milljörðum króna á ári. Það eru á milli 250 og 300 þúsund krónur á hvert heimili á ári.“
„Þetta eru auðvitað falsrök“
Oft heyrist því fleygt að nauðsynlegt sé að styrkja landbúnaðinn vegna fæðuöryggissjónarmiða, ef innflutningur stöðvast til landsins. Þetta eru auðvitað falsrök, því að landbúnaðarvélar ganga fyrir erlendu eldsneyti og áburður og fóður er jafnmikið innflutt og aðrar erlendar vörur. Núverandi forsætisráðherra hefur líka haldið því fram að kolefnisspor innfluttra matvara séu sterk rök gegn innflutningi. Flokkur hennar hefur þó ekki enn beitt svipuðum rökum gegn útflutningi á sjávarafurðum.
„Líklega munu systurflokkarnir þrír í ríkisstjórn sameinast um viðnám gegn hag neytenda á komandi vetri. Orðið frelsi er merkingarlaust í þessum flokkum. Nema auðvitað frelsi vildarvina þeirra.“
Snemma í grein sinni segir Benedikt: „Kampavín er drykkur ríkisstjórnarinnar.“