Vinnumarkaður Regluleg laun voru að meðaltali 1,9% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2014 en á ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 5,5% að meðaltali, hækkunin var 5,7% á almennum vinnumarkaði og 4,9% hjá opinberum starfsmönnum. Þar af hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,6% en 4,1% hjá starfsmönnum sveitarfélaga. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Laun á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein og starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í byggingarstarfsemi og verslun eða um 3,0%. Þá hækkuðu laun milli ársfjórðunga um 2,4% í iðnaði, 1,7% í fjármálaþjónustu og 1,4% í samgöngum. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í byggingarstarfsemi eða um 7,1% en minnst í iðnaði eða um 5,0%.
Frá fyrri ársfjórðungi var hækkun reglulegra launa eftir starfsstéttum á bilinu 1,5% til 3,2%. Laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks hækkuðu mest en laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks minnst. Frá fyrra ári hækkuðu laun skrifstofufólks og þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest eða um 7,1% en laun stjórnenda minnst eða um 4,9%. Á sama tíma hækkuðu regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks um 5,6%, sérfræðinga og iðnaðarmanna um 5,4% og verkafólks um 5,2%.
Kjarasamningar
Í vísitölu launa á fyrsta ársfjórðungi 2014 gætir áhrifa nýgerðra kjarasamninga.
Í kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands, sem undirritaðir voru 21. desember 2013, var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 2,8% hinn 1. janúar 2014 en þó að lágmarki kr. 8.000 á mánuði miðað við fullt starf. Einnig var kveðið á um sérstaka hækkun lægstu kauptaxta. Hjá þeim hluta aðildarfélaganna sem felldu samningana í desember 2013 kom kjarasamningshækkunin ekki til framkvæmda fyrr en í mars og því koma áhrif hennar ekki að fullu til framkvæmda fyrr en í vísitölu launa á öðrum ársfjórðungi 2014.
Í kjarasamningum fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og stéttarfélaga opinberra starfsmanna sem voru undirritaðir á vormánuðum 2011 var kveðið á um 38 þúsund króna eingreiðslu við lok samningstímans. Kom sú eingreiðsla til útborgunar í janúar 2014 og hafði áhrif til 0,1% hækkunar launavísitölu á ársgrundvelli.
Um vísitölu launa
Vísitala launa endurspeglar þróun reglulegra launa og er gefin út ársfjórðungslega. Birtar eru niðurstöður eftir atvinnugrein og starfsstétt á almennum vinnumarkaði en fyrir opinbera starfsmenn eru niðurstöður birtar eftir stjórnsýslustigi. Opinberir starfsmenn teljast þeir starfsmenn sem eru starfsmenn sveitarfélaga og þeir starfsmenn ríkis sem fá greidd laun frá fjársýslu ríkisins. Aðrir tilheyra almennum vinnumarkaði.