Birgir Jónsson skrifar:
Þetta hefði getað verið svo slæmt. Svo mikil glansmynd. Svo mikil lofgjörð.
Í staðinn er þetta algjörlega stórkostlegt listaverk. Brútal. Fallegt. Ég vissi ekki að gæsahúðin mín gæti fengið gæsahúð. Hvílíkur rússíbani.
Og þegar Bubbi kom sjálfur í lokin, þá brast kalda hjartað mitt og tárin féllu. Takk fyrir mig elsku Bubbi. Takk fyrir hugrekkið og takk fyrir að gefa aldrei neinn fokking afslátt af neinu sem þú gerir.