„Ísraelsher er kominn inn í 4. viku sinna aðgerða gagnvart Hamas-hreyfingunni, eftir að henni tókst svo sannarlega að koma landinu á óvart með árásum sínum 7. október, með því að skjóta þúsundum flauga á íbúðahverfi og slátra óbreyttum borgurum. Varasamt er að verðlauna þessa hreyfingu með því að taka undir kröfu hennar um vopnahlé í þeirri styrjöld sem hún sjálf stofnaði til, án þess að hafa þekkingu á því hvað í þeirri kröfu felst,“ segir leiðara Moggans í dag.
Meiri mannvonska er varla til. Þar sem Hamas drap óbreyttra borgara í Ísrael þá sé gott og vel að her Ísrael slátri margfalt fleiri óbreyttum borgurum á Gaza. Þessi rök eru hreint fáránleg.
Það verður að gera hlé á þeim hryllingi sem á sér stað. Nánast án hvíldar. Hversu mörg börn verða að fórna lífi sínu svo ofurefli Ísraela linni?
-sme