Lilja Mósesdóttirm, fyrrverandi alþingismaður og hagfræðingur, hrósar ríkisstjórninni og Seðlabankanum lítt fyrir framgönguna í haftamálinu.
„Samkomulag Seðalbankans við aflandskrónueigendur er enn einn afleikurinn. Afleikur sem mun kosta okkur um 54 milljarða í töpuðum tekjum, þar sem Seðlabankinn fær ekki 190 kr. heldur 137, 5 kr. þegar hrægammarnir kaupa af honum evrur fyrir 195 milljarða kr,“ skrifar hún meðal annars á Facebook.
„Bíð spennt eftir svokölluðu afnámi hafta. Síðast þegar tilkynnt var að hefja ætti afnám hafta, þá voru þau í raun hert á almenning. Í vetur hefur almenningur þurft að senda inn yfirlit um eyðslu erlendis til að fá leyfi til að millifæra til útlanda fyrir eyðslunni. Það þurfti ekki frá a.m.k. 2013.
Almenningur á Íslandi borgar fyrir „afnám hafta“ með vaxtameti Seðlabankans og gengislækkuninni sem verður þegar fjárfestar og lífeyrissjóðir fá leyfi til að fjárfesta erlendis.
Samkomulag Seðalbankans við aflandskrónueigendur er enn einn afleikurinn. Afleikur sem mun kosta okkur um 54 milljarða í töpuðum tekjum, þar sem Seðlabankinn fær ekki 190 kr. heldur 137, 5 kr. þegar hrægammarnir kaupa af honum evrur fyrir 195 milljarða kr.“ Skrifar Lilja Mósesdóttir.