Þá er greinilegt að sérgreinalæknar líta á það sem ógn við sína hagsmuni, þegar sagt er í heilbrigðisstefnu að styrkja eigi göngudeildarstarfsemi sjúkrahúsanna, ekki síst á Landspítala.
„Sérgreinalæknar vilja bæði éta kökuna og halda henni óskertri,“ er meðal þess sem lesa má í langri grein Birgis Jakobssonar, aðstoðarmanns Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og fyrrvernadi landlæknis, sem birt er í Mogganum í dag.
Þar svarar hann orðum þeirra Ragnar Jónsson og Ágúst Kárason bæklunarlækna sem starfa í Orkuhúsinu.
„Í þessu sambandi má nefna að ófáir sjúklingar með slitgikt í hnjám og mjöðmum hafa notið þjónustu bæklunarlækna í Orkuhúsinu um langa hríð til þess að átta sig á því þegar komið er að liðskiptum að slíkar aðgerðir eru ekki gerðar þar og verða þá að bíða mánuðum saman eftir tíma á göngudeild þess spítala sem framkvæmir þessar aðgerðir til þess eins að komast á biðlista eftir aðgerð. Þá kemur fram í viðtali við þá félaga, að sjúklingar þeirra geti þurft á þjónustu opinbera kerfisins að halda, ef óvænt atvik koma upp. Þeir geta þess ekki að erlendis greiðir einkaaðilinn fyrir þann kostnað sem hlýst af mistökum. Sérgreinalæknar vilja bæði éta kökuna og halda henni óskertri,“ segir Birgir.
En hvað vill fólk? Birgir er viss:
„Meirihluti Íslendinga vill hafa sterkt heilbrigðiskerfi sem er fjármagnað af hinu opinbera. Heilbrigðisstefna til ársins 2030 tekur raunverulega ekki afstöðu til opinbers reksturs eða einkareksturs í heilbrigðisþjónustu. Það sem kemur skýrt fram í stefnunni um þetta mál er að forsendur fyrir opinberum rekstri og einkarekstri í heilbrigðisþjónustu verði að vera hinar sömu. Þetta hefur verið ein helsta brotalömin í íslensku heilbrigðiskerfi hingað til. Hvatakerfin hafa leynt og ljóst stýrt heilbrigðisstarfsfólki, ekki síst sérgreinalæknum, út í einkarekstur með neikvæðum afleiðingum fyrir opinbera þjónustuveitendur. Þar að auki hefur, eins og Ríkisendurskoðun hefur bent á, markvisst verið sparað í opinbera kerfinu sl. tvo áratugi meðan einkarekstur hefur fengið fríbréf og aukið hlutdeild sína.“
Og hvað vill ráðherrann?
„Núverandi heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að auknu fé í heilbrigðiskerfið verði varið til þess að styrkja grunnstoðir opinberu heilbrigðisþjónustunnar á öllu landinu, sem farið hefur halloka fyrir vaxandi einkavæðingu á höfuðborgarsvæðinu síðustu áratugi. Ég er sannfærður um að meirihluti þjóðarinnar er hlynntur þeirri áherslu.“
Birgir er gagnrýnin. Jafnvel efast hann um heilindi sérfræðilækna. Jafnvel að læknar geri aðgerðir án þess að þeirra sé þörf. Þung gagnrýni.
„Í heilbrigðisstefnu er lögð áhersla á mikilvægi þess að kaup ríkisins á heilbrigðisþjónustu séu skilvirk, gerðar séu kröfur um aðgengi og gæði og að kaupin séu byggð á greiningu á þeirri þörf sem fyrir liggur og greiningu á kostnaði þeirrar þjónustu sem veitt er. Það virðist helst vera þetta sem fer fyrir brjóstið á sérgreinalæknum, en eins og allir vita og Ríkisendurskoðun hefur bent á hafa þeir haft sjálfdæmi um það hvaða þjónusta er veitt og af hverjum. Reikningurinn hefur verið sendur á ríkið óháð því hvort þörf hefur verið á þjónustunni eða ekki. Þjónustan er veitt á forsendum þjónustuveitenda en ekki eftir þörfum notenda. Þá er greinilegt að sérgreinalæknar líta á það sem ógn við sína hagsmuni, þegar sagt er í heilbrigðisstefnu að styrkja eigi göngudeildarstarfsemi sjúkrahúsanna, ekki síst á Landspítala. Þetta er gert til þess að markvisst auka aðgengi landsmanna að þjónustu sérgreinalækna og að sjúklingar eigi aðgang að þessari þjónustu óháð því hvort þeir hafi legið inni á spítalanum eða ekki.“